|
Mánudagur, 28. mars 2011 11:38 |
|
Nótunni 2011 – uppskeruhátíð tónlistarskóla – lauk með pompi og prakt síðastliðinn laugardag með tvennum glæsilegum lokatónleikum ásamt lokaathöfn sem fram fór í Langholtskirkju í Reykjavík. Á dagskrá tónleikanna voru 25 tónlistaratriði frá tónlistarskólum af öllu landinu þar sem um 260 tónlistarnemendur á öllum stigum tónlistarnáms stigu á stokk og fluttu mjög svo fjölbreytt tónlistaratriði sem spönnuðu stóran hluta tónlistarsögunnar. Tónlistaratriðin 25 höfðu fyrr í mánuðinum verið valin úr miklum fjölda atriða á svæðistónleikum hátíðarinnar sem fram fóru á þremur stöðum á landinu.
Tónleikagestir troðfylltu Langholtskirkju og á lokaathöfninni fylltist einnig safnaðarheimilið og kirkjan var hreinlega opnuð upp á gátt og troðið var út úr dyrum. Stemmingin var gríðarleg þar sem spilagleði, metnaður og eftirvænting einkenndi andrúmsloftið.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, flutti ávarp á lokaathöfn Nótunnar og ræddi meðal annars um gildi tónlistar fyrir lífið sjálft og mikilvægi tónleika eins og Nótunnar til að sýna kraftinn í íslenskum tónlistarskólum. Í máli hans kom fram að hann teldi ekki síður ástæðu til að kalla Íslendinga tónlistarþjóð en bókmenntaþjóð.
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 24. mars 2011 10:22 |
|
Lokatónleikar Nótunnar - uppskeruhátíðar tónlistarskóla fara fram í Langholtskirkju í Reykjavík laugardaginn 26. mars 2011. Á lokahátíðinni verða flutt 25 tónlistaratriði sem valin eru úr hópi atriða sem hlotið hafa viðurkenningar á þremur svæðisbundnum tónleikum hátíðarinnar. Fjöldi atriða frá hverju svæði tekur mið af fjölda tónlistarskóla og tónlistarnemenda á hverju svæði:
Frá sameiginlegum tónleikum tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Suðurnesjum eru valin: 15 atriði.
Frá sameiginlegum tónleikum tónlistarskóla á Vesturlandi, Vestfjörðum og V-Húnavatnssýslu eru valin: 3 atriði.
Frá sameiginlegum tónleikum tónlistarskóla á Norður- og Austurlandi eru valin: 7 atriði.
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 24. mars 2011 09:14 |
|
Þriðju og síðustu svæðisbundnu tónleikar Nótunnar fóru fram í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði síðast liðinn laugardag. Um 90 nemendur úr tónlistarskólum á Norður- og Austurlandi stigu á stokk og fluttu fjölbreytta tónlist frá ólíkum tímabilum tónlistarsögunnar.
Efniskráin var fjölbreytt og skemmtileg þar sem sjá mátti lög eftir meistara Bach, Mozart og Tchaikovsky við hliðina á ABBA, Peter Gunn, marimbasveit, tangósveit og bigbandi svo eitthvað sé nefnt. Dagurinn tókst mjög vel til og var öllum til ánægju og sóma.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |